"Pólitískur rétttrúnaður í trú"!

Það er mont og flottræfilsháttur af SF VG menningarelítunni og þeirra viðhengjum BF og Sjóræningjum að stilla upp mosku í gamalli kirkju í Feneyjum sem framlag Íslands til svokallaðs Tvíærings.

Á Íslam svo djúpar rætur í íslenskri þjóðmenningu að hún verðskuldi þennan vafasama heiður? Nei það gerir hún ekki, og ef við leitum til fortíðar? Í Vestmannaeyjum drápu þeir 36 og námu 242 á brott. Í Grindavík drápu þeir 2 og námu 15 á brott.

Íslam á blóðidrifna sögu hér, varðaða skelfingum og msnnlegum harmleik. Þeir herjuðu einnig á Austfirði sem bættist við á þá rændu og myrtu, en mér tókst ekki að hafa uppi á hvaða glæpaverk þeir frömdu þar, kemur síðar.Hvenær minnumst við þeirra sem í þessar hörmungar rötuðu?

Úr því Íslam er gert svo hátt undir höfði, má ekki næst taka fyrir Votta Jehóva, Aðventista, Mormóna, jafnvel Amish svo dæmi sé tekið? Allt eru þetta jaðarsöfnuðir líkt og múslimar eru og eiga sér fylgjendur fáa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband