Valdimar Vilhjálmsson
Ég fæddist og ólst upp á Kirkjubæjarklaustri fyrstu 20 ár ævi minnar uns fjölskyldan fluttist á Seltjarnarnes.
Stundaði um skeið nám við M.H. en fór síðan á vinnumarkaðinn ýmissa starfa.
Bjó austan Miklubrautar í rúmlega 2 áratugi þá er ég fluttist að Boðagranda 5 í Vesturbænum þar sem ég er núna til húsa.
Hef fetað ýmsa stigu í pólitík, Framsóknarmaður í byrjun, færðist yfir í Maókommúnisma á mótþróaskeiðinu en er nú kominn á réttu brautina sem hófsamur miðjumaður í Framsókn og nokkuð sáttur við lífið og tilveruna.